Óvissuferðir á Facebook
 
 
Umsagnir ferðalanga

Starfsfólk TVG Ziemsen fór í óvissuferð í september 2008:  Í haust fórum við hjá TVG Zimsen í óvissuferð á vegum Hópbíla. Hópurinn skellti sér m.a á Leirdúfu skotsvæði og var það vægast sagt frábært.  Allir tóku þátt og höfðu allir gaman af.  Óvissa sá um skipulagninguna, og get ég mælt með því fyrirtæki 100 %...... Takk fyrir okkur. Kv Hulda Waage

Starfsfólk Háskólans í Reykjavík fór í ratleik á Akranesi og karokíkeppni á Fossatúni í Borgarfirðinum í september 2008: "Frábær ferð í alla staði, ratleikurinn stóð algjörlega undir væntingum og móttökur í Fossatúni frábærar. Steinar stjórnaði karíókíkeppnni snilldarlega og allir fóru ánægðir heim."

Neistinn, félag hjartveikra barna (unglingahópur) fór í fjórhjólaferð í febrúar 2008: "Við þökkum alveg kærlega fyrir okkur, þetta var alveg frábært í alla staði".

Pylsuvagninn Selfossi, fóru í Hljóðver Magga Kjartans í október 2007: "Vildi bara þakka kærlega fyrir okkur pylsusystur, þessi heimsókn okkar til ykkar í hljóðverið hjá Magga gerði þvílíka lukku og Maggi hreint út sagt frábær, skilar kveðju til hans frá okkur! bara takk kærlega fyrir :) "

Starfsfólk Háskólans í Reykjavík fór í Flúðasiglingu í septeber 2007: "Ekkert nema tóm gleði og ánægja með óvissuferðina hjá okkur í HR. Frábærlega tekið á móti okkur á Drumboddsstöðum. Siglingin ótrúlega skemmtileg og leiðsögumennirnir skemmtilegir og greinilega með allt á hreinu. Frábær matur og taumlaus gleði hjá okkur eftir matinn. .... Ég segi bara takk fyrir okkur :-)  Frábært alveg í alla staði".

Landspítali fjármálasvið hafði þetta að segja um BorgfirzkaBlöndu: "Maggi Kjartans var ÆÐISLEGUR og ferðin á Hvanneyri stórkostleg. Guðmundur er frábær sögumaður og Sveitafitnessið féll í kramið hjá öllum aldurshópum."

Hópur frá Grettisgötu 89 fór í Reykjanesrúnt: "Það voru allir yfir sig ánægðir með Magga Kjartans og svo dýrindis matinn á Bláa Lóninu. Góð þjónusta í alla staði. Herra Rútubílstjóri var mjög fínn og almennilegur ."

Íslandspóstur/útkeyrsludeild var með starfsdag og aðstoðaði Óvissa með hluta af deginum: "Við erum mjög ánægð með ykkur. Leikirnir voru skemmtilegir og tenging við þema dagsins var góð."

KPMG fékk leigða rútu og fór til Magga Kjartans í stúdíó: "Mjög góð þjónustulund skipuleggjanda, rútubílstjóri með góðan húmor og allar áætlanir stóðust og Maggi Kjartans var líka í essinu sínu ... mælum hiklaust með Óvissu fyrir næstu skipulagningu."



 






       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059